Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Fá 1450 fermetra skrifstofurými með göngubrú

Fá 1450 fermetra skrifstofurými með göngubrú

41
0

Unnið er hörðum höndum að því að klára fjórðu hæð austurálmu Keflavíkurflugvallar (KEF). Þar mun rísa nýtt skrifstofurými fyrir starfsfólk flugvallarins. Framkvæmdir við fjórðu hæðina hófust í fyrra en gert er ráð fyrir því að hæðin verði tekin í notkun í lok þessa árs.

Um er að ræða 1.450 fermetra skrifstofurými sem tengt hefur verið við skrifstofur í  norðurbyggingu flugstöðvarinnar með göngubrú.

Framkvæmdir við austurálmuna sjálfa hófust árið 2021 og hefur hún verið tekin í notkun í áföngum. Árið 2023 opnaði nýr komusalur og farangursmóttaka og fyrr á þessu ári fóru fyrstu farþegarnir í gegnum landgöngubrýrnar og rútuhliðin á annarri hæð álmunnar.

Þegar fram í sækir verður þriðja hæðin notuð til að taka móti gestum sem koma til Íslands frá löndum utan Schengen-svæðisins.

Heimild: Sudurnes.net