Home Fréttir Í fréttum Opnun útboðs: Yfir­lagn­ir á Austur­svæði 2025, malbik og malbiksvið­gerð­ir

Opnun útboðs: Yfir­lagn­ir á Austur­svæði 2025, malbik og malbiksvið­gerð­ir

31
0

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir með malbiki og blettaviðgerðir á malbikuðum slitlögum á vegum á Austursvæði árið 2025.

Helstu magntölur eru áætlaðar:
Yfirlagnir
8.900 m2
Gróffræsing (fræsing lása)
150 m2
Malbiksviðgerðir / blettaviðgerðir
200 m2

Verklok eru 15. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með fimmtudeginum 10. júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júlí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.