
Góður gangur er nú í byggingu Fjallabaðanna í Þjórsárdal. Þarna verður baðstaður og 40 herbergja hótel; mannvirki sem eru byggð við fjallið Rauðukamba og eiga að falla inn í landslagið þar.
Framkvæmdir sem Jáverk hefur með höndum fóru á fullt skrið nú í vor og á staðnum eru fjölmennir vinnuflokkar.

Fyrirhuguð opnun vorið 2028
Þeirra vegna hafa verið reistar þær vinnubúðir sem sjást fremst á myndunum, en fjær útlínur og undirstaða þess sælureits sem Fjallaböðin koma til með að verða. Opnun þeirra er fyrirhuguð í maí 2028.
Þjórsárdalur er í það minnsta þriðji staðurinn þar sem nú er verið að koma upp baðlónum með þægindum. Hinir eru í Laugarási í Biskupstungum og í Reykjadal við Hveragerði.
Heimild: Mbl.is