Bæjarráð Árborgar hefur veitt Heklu hf. vilyrði fyrir atvinnulóð að Fossnesi 11-13 á Selfossi. Fyrirtækið ráðgerir að hefja framkvæmdir síðar á árinu.
Sveitarfélagið greinir frá þessu á heimasíðu sinni.
Lóðin sem bæjarráð veitti vilyrði fyrir er staðsett að Fossnesi 11-13, við hlið Atlantsolíu og snýr beint að innkomunni inn á Selfoss. Gott samtal hefur verið milli sveitarfélagsins og forsvarsmanna Heklu hf. sem hefur sýnt mikinn áhuga á að byggja upp aukna starfsemi innan sveitarfélagsins.
„Það er ánægjulegt að öflug fyrirtæki líkt og bílaumboðið Hekla horfi til uppbyggingar í Árborg. Hér á svæðinu er rík hefð fyrir góðri verslun og þjónustu og mun uppbygging Heklu hf. efla enn frekar núverandi þjónustu fyrirtækisins og fjölga störfum á svæðinu“, segir Bragi Bjarnason bæjarstjóri að þessu tilefni.
„Mörg fyrirtæki horfa til uppbyggingar á Suðurlandi enda margt jákvætt að gerast með bættum samgöngum, uppbyggingu inn- og útflutningshafna auk fjölgunar íbúa sem leita frekar í störf hérna megin heiðarinnar“, bætir Bragi við.
Áætlanir Heklu hf. eru að framkvæmdir hefjist í haust og á lóðinni verði bílasala ásamt þjónustutengdri starfsemi.
Heimild: Dfs.is