Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 22.07.2025 Þurr­fræs­ing á Norður­svæði 2025, Hring­vegur, við Ljósa­vatns­karð í Þing­eyrjar­sýslu og Hjalta­dal...

22.07.2025 Þurr­fræs­ing á Norður­svæði 2025, Hring­vegur, við Ljósa­vatns­karð í Þing­eyrjar­sýslu og Hjalta­dal í Skaga­firði

32
0
Mynd úr safni. mbl.is/Ómar Óskarsson

Vegagerðin óskar eftir tilboðum í þurrfræsingu  og tvöfalda klæðingu á vegum á Norðursvæði 2025.

Um er að ræða annars vegar fræsingu á núverandi slitlagi/burðarlagi, akstur og útlögn á burðarlagi og tvöfalda klæðingu. Samhliða fræsingu skal jafna hæðarlegu og þverhalla vegarins. Fræsingarkaflar eru staðsettir í Ljósavatnskarði Þingeyrjarsýslu og Hjaltadal Skagafirði. Vakin er athygli á að verktaki skal leggja til burðarlagsefni 0/22mm og steinefni í klæðingu 8/16, 11/16 og 8/11 mm, komið á verkstað.

Helstu magntölur eru áætlaðar:
Burðarlagsefni 0/22 mm
3.760 m³
Þurrfræsing
50.000 m2
Klæðingarefni
1.400 m³
Klæðingarefni 8/16
790 m³
Klæðingarefni 11/16
310 m³
Klæðingarefni 8/11
290 m³
Tvöföld klæðing
49.000 m2

Verklok eru 1. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með þriðjudeginum 8. júlí 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 22. júlí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.