Orkubú Vestfjarða ohf., óskar eftir tilboðum í útboð nr. 2025-04
„Viðbygging Skeið 7, Ísafirði og ný spennistöð Langeyri, Súðavík“
Verkið felst í byggingu steyptrar viðbyggingar við spennarými núverandi tengivirkis á lóðinni Skeiði 7, Ísafirði og byggingu spennistöðvar úr stálgrind á steyptum grunni á Langeyri í Álftafirði.
ATH Ekki er hægt að hefja vinnu við jarðvinnu og sökkla fyrir spennistöðina á Langeyri fyrr en 1. október 2025.
Verkið felur í sér mælingar á verkstað, jarðvinnu, mótauppslátt, uppsteypu sökkul undirstaðna, gólfplötu og útveggja, uppsetningu stálgrindar og timburbita, frágang utanhúss og frágang lóðar. Listinn er ekki tæmandi
Bjóðendum er bent á að kynna sér aðstæður á staðnum, verklýsingar og teikningar.
Helstu stærðir vegna viðbyggingar, Skeiði 7:
- Stærð viðbyggingar – 70,5 m2
- Jarðvinna – 132 m3
- Mótasmíði – 369 m2
Helstu stærðir vegna spennistöðvar, Langeyri:
- Stærð byggingar – 2 m2
- Jarðvinna – 123 m3
- Mótasmíði – 111 m2
Verkinu skal að fullu lokið 30.09.2026
Skilafrestur tilboða er til 6. ágúst 2025, kl. 11:00.
Útboðsgögn og allar nánari upplýsingar má finna á útboðsvef Orkubús Vestfjarða: https://in-tendhost.co.uk/orkubu/
Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.