Home Fréttir Í fréttum Efla greiðir út 1,1 milljarð

Efla greiðir út 1,1 milljarð

74
0
Sæmundur Sæmundsson, framkvæmdastjóri Eflu. Ljósmynd: Haraldur Guðjónsson / Aðsend mynd

Ársverkum hjá Eflu fjölgaði úr 421 í 481 milli ára.

Efla verkfræðistofa skilaði ríflega 1,1 milljarðs króna hagnaði eftir skatta á síðasta ári, samanborið við 1,2 milljarða hagnað árið áður. Stjórn félagsins lagði til að greiddur verði út arður að fjárhæð 1,1 milljarður króna til hluthafa í ár, samkvæmt ársreikningi.

Rekstrartekjur jukust um 11,4% milli ára og námu tæplega 12,3 milljörðum króna í fyrra. EBITDA-hagnaður dróst saman um 4,8% milli ára og nam 1,4 milljörðum króna.

„Verkefnastaða félagsins hefur verið góð undanfarna mánuði og horfurnar eru góðar fyrir árið 2025. Óvissa í efnahagsumhverfi getur haft áhrif á eftirspurn eftir þjónustu,“ segir í skýrslu stjórnar.

Skjáskot af Vb.is

Laun og annar starfsmannakostnaður jókst um 13%, eða um 904 milljónir króna, milli ára og nam tæplega 7,9 milljörðum króna. Meðalfjöldi stöðugilda var 481 í fyrra samanborið við 421 árið 2023.

Eignir Eflu voru bókfærðar á 5,2 milljarða króna í árslok 2024 og eigið fé var um 2,8 milljarðar króna. Í lok síðasta árs voru 160 hluthafar í félaginu.

 

Heimild: Vb.is