Í síðustu viku afhenti verktakafyrirtækið Alefli ehf lykil að nýjum leikskóla í Helgafellshverfi í Mosfellsbæ.
Leikskólinn Sumarhús tekur formlega til starfa nú á haustdögum. Kanon arkitektar sáu um arkitektahönnun bygginga, aðkomusvæða og leikskólalóðar.

Meðhönnuðir voru Teknik verkfræðistofa ehf, TKM Hönnun ehf, Örugg verkfræðistofa ehf og Hljóðvist. Umsjón og eftirlit: VSÓ Ráðgjöf ehf.
Nánar verður fjallað um verkefnið á heimasíðu Kanon arkitekta.
Heimild: Facebooksíða Kanon arkitekta