Stórfelldar breytingar gætu orðið á Þórsmörk, miðað við auglýsingar á lóðum sem boðnar hafa verið til leigu. Byggingar þar gætu orðið margfalt stærri en nú er.
Rangárþing eystra hefur auglýst lóðir til leigu í Þórsmörk og gætu stórfelldar breytingar fylgt í kjölfarið. Byggingar þar gætu orðið margfalt stærri en nú er. Ferðaskrifstofan Icelandia ehf. sótti um lóðirnar í Básum, Langadal, Emstrum og Slyppugili, en dótturfyrirtækið Kynnisferðir rekur hálendisrútuna sem ekur daglega í Þórsmörk á sumrin.
Nú þegar er Ferðafélag Íslands með starfsemi í Húsadal, Langadal og við Emstrur, Bandalag íslenskra farfugla í Slyppugili og Útivist með starfsemi í Básum. Þessi félög sóttu öll um að leigja þær lóðir áfram.
„Útivist er búin að vera hér í 45 ár og hefur unnið mjög óeigingjarnt starf hérna og byggt upp þessa skála og alla aðstöðu mestmegnis í sjálfboðavinnu,“ segir Svea Sigurgeirsdóttir, staðarhaldari í Básum. „Helst held ég að allir Útivistarfélagar vilji halda þessu svæði sem mest óbreyttu en að það sé aðgengilegt fyrir alla.“
Samanlögð stærð lóðanna sem boðnar eru út eru tæplega 25 hektarar og samanlagt leyfilegt byggingarmagn tæpir 4.000 fermetrar, sem er margfalt meira en er nú. Á einni lóðinni í Húsadal er einnig gert ráð fyrir heitum pottum. Heildarfjöldi gistirýma liggur ekki fyrir.
Heimild: Ruv.is