Framkvæmdir eru hafnar við fjölbýlishús með 60 íbúðum á Háteigsvegi 35 í Reykjavík. Húsin verða gegnt safnaðarheimili Háteigskirkju og vestan við Sjómannaskólann.
Verktakafyrirtækið Jáverk fer með uppbygginguna en verið er að grafa grunn húsanna.
Gylfi Gíslason framkvæmdastjóri Jáverks segir verið að grafa fyrir grunni. Það verði ekki tímafrekt enda sé enginn bílakjallari. Áformað sé að hefja uppsteypu í haust en stefnt sé að afhendingu íbúða eftir 18-24 mánuði.fyrstu
Gylfi segir íbúðirnar, eignaríbúðir, hugsaðar sem hagkvæmt húsnæði fyrir fyrstu kaupendur. Verðið verði því hagkvæmara en gengur og gerist en dregið verði úr hópi umsækjenda.
Heimild: Mbl.is