Veitur ohf. óskar eftir tilboðum í verkið „VEV-2025-14 Seleyri – Ný dælustöð“
Verkið snýst um að reisa dælustöðvarhús yfir borholu SE-20 og borholuhús yfir SE-21. Allur frágangur á húsum, loftræsing, neyslulagnir, niðurföll og raflagnir fyrir húsin. Verkefnið felur í sér að útvega og setja upp allan búnaði í dælustöðvarhúsið og í borholuhús SE-21.
Inni í verkinu er að útvega og setja niður allar vatnslagnir samkvæmt þessari verklýsingu og hönnunar gögnum. Öll jarðvinna vegna húsbygginga og lagna í jörðu.
Inni í verkinu eru einnig allar raflagnir og ídráttarrör utanhúss samkvæmt þessari verklýsingu og hönnunar gögnum. Öll jarðvinna vegna húsbygginga, verkplana o.þ.h. og lagna sem koma í jörðu.
Hluti af verkinu er að fjarlægja allan þann búnað og mannvirki sem núna er á svæðinu og farga eða urða eins og fram kemur nánar hér að neðan. Hluti lagna sem liggur í jörðu verður skilin eftir og gengið verður frá aflögðum brunnum með því urða yfir og jafna yfirborð eins og nánar er útlistað í útboðsgögnum.
Útboðsgögn afhent: | 25.06.2025 kl. 16:00 |
Skilafrestur | 17.07.2025 kl. 14:00 |
Opnun tilboða: | 17.07.2025 kl. 14:00 |
Sjá nánari upplýsingar um verk í útboðsgögnum.