Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Framkvæmdir hafnar á skólaþorpi í Laugardal

Framkvæmdir hafnar á skólaþorpi í Laugardal

23
0
Lóðavinna er hafin á bílastæðum á horni Reykjavegar og Engjateigs. Ljósmynd/Reykjavíkurborg

Fram­kvæmd­ir eru hafn­ar á skólaþorpi sem reist verður á bíla­stæði á horni Reykja­veg­ar og Engja­teigs í Laug­ar­dal. Skólaþorpið mun hýsa nem­end­ur úr Laug­ar­nesskóla, Lauga­lækj­ar­skóla og Lang­holts­skóla.

Skólaþorpið er tíma­bundið úrræði þar til fram­kvæmd­ir á skól­um í Laug­ar­dal eru yf­ir­staðnar. Stefnt er að tíu kennslu­stof­ur verði tekn­ar í notk­un nú í haust.

Þá er áætlað að síðari áfangi skólaþorps­ins, sem inni­held­ur sex kennslu­stof­ur auk 900 fer­metra ein­inga­húss, verði til­bú­inn vorið 2026, seg­ir Gréta Þórs­dótt­ir Björns­son, deild­ar­stjóri ný­bygg­ing­ar­deild­ar Reykja­vík­ur­borg­ar, í sam­tali við mbl.is.

Skólaþorpið er tíma­bundið úrræði á meðan fram­kvæmd­ir eru á grunn­skól­um í Laug­ar­dal. Teikn­ing/​Horn­stein­ar arki­tekt­ar

Mygla greinst í öll­um skól­un­um

Mygla hef­ur greinst í öll­um þrem­ur grunn­skól­un­um í Laug­ar­dal. Farið hef­ur verið í mót­vægisaðgerðir og þrif til að bæta inni­vist og farið verður í viðhald og end­ur­bæt­ur þegar starf­semi verður flutt annað.

Viðhald skól­anna er misaðkallandi en tal­in er mest þörf á end­ur­bót­um í Laug­ar­nesskóla að sögn Grétu. Hluti nem­enda úr Laug­ar­nesskóla mun því stunda nám fyrst um sinn í skólaþorp­inu.

Búið er að gera ástands­skýrslu á skól­un­um þrem­ur og tel­ur Gréta þörf á meiri hátt­ar viðhaldi á skól­un­um.

Að sögn Grétu verður skólaþorpið ekki nægi­lega stórt til að hýsa börn úr skól­un­um þrem­ur í einu. Þegar síðari áfanga fram­kvæmd­anna lýk­ur kom­ast öll börn úr Laug­ar­nesskóla fyr­ir.

Ákveðin keðju­verk­un

Gréta seg­ir að viðhalds- og end­ur­bótafram­kvæmd­um lokn­um á ákveðnum bygg­ing­um Laug­ar­nesskóla get­ur hluti nem­enda úr þeim skóla snúið aft­ur.

Við það losn­ar pláss í skólaþorp­inu fyr­ir börn úr öðrum skól­um og því næst er hægt að hefja nauðsyn­leg­ar fram­kvæmd­ir í næsta skóla.

Heimild: Mbl.is