Sveitarfélagið Árborg hefur ákveðið að lækka gatnagerðargjöld af atvinnulóðum um helming til að bæta samkeppnisstöðu sína og hvetja til aukinnar atvinnuuppbyggingar.
Þetta segir Bragi Bjarnason, bæjarstjóri Árborgar, í samtali við mbl.is.
Á fundi bæjarstjórnar þann 4. júní var samþykkt að lækka gatnagerðargjöld fyrir atvinnulóðir úr 10% niður í 5% af verðgrunni hagstofunnar.
Lágmarksgjald lækkar einnig
Aðgerðin kemur í kjölfar heildarskoðunar á byggingarréttargjöldum og gatnagerðargjöldum sveitarfélagsins.
Bragi segir að lækkunin nái sérstaklega til atvinnulóða, þar sem bæði gatnagerðargjaldið lækkar um helming og lágmarksgjald við úthlutun atvinnulóðar minnkar.
„Árborg er mjög spennandi svæði,“ segir Bragi. „En við höfum ekki verið samkeppnishæf þegar litið er til nágrannasveitarfélaga á sama atvinnusvæði.“
„Margt mjög spennandi í gangi“
Hann segir að sveitarfélagið hafi borið sig saman við nágrannasveitarfélögin með hliðsjón af sameiginlegri atvinnustefnu og komist að þeirri niðurstöðu að Árborg væri dýrari en önnur sveitarfélög á svæðinu.
„Þannig við vildum endurskoða þennan lið með það í huga að verða samkeppnishæfari á svæðinu, ýta undir lægri skatta og hvetja til frekari atvinnuuppbyggingar,“ segir Bragi.
Bragi bendir á að sveitarfélagið hafi nýlega samþykkt nýtt deiliskipulag og vill sveitarfélagið styðja við frekari atvinnuuppbyggingu með áherslu á nægt framboð lóða og lækkun skatta.
„Við erum með mjög spennandi svæði, í raun allt þetta atvinnusvæði. Tenging við inn- og útflutningshöfn, við þjóðveginn og fjölgunin á svæðinu. Það er margt mjög spennandi í gangi,“ segir Bragi.
Heimild: Mbl.is