Home Fréttir Í fréttum Arion auglýsir Arnarland til sölu

Arion auglýsir Arnarland til sölu

49
0
Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka. Ljósmynd: Eyþór Árnason

Í Arnarlandi er heimilt að reisa um 50 þúsund fermetra af íbúðarhúsnæði og 5.400 fermetra af atvinnuhúsnæði.

Eigendur Arnarlands ehf., sem heldur utan um 9 hektara landspildu á norðanverðum Arnarneshálsi sem gengur undir nafninu Arnarland, hafa ákveðið að setja allt hlutafé félagsins í söluferli.

Arion banki á 51% hlut í Arnarlandi, í gegnum dótturfélagið sitt Landey, á móti 49% hlut Fasteignafélagsins Akurey ehf. sem Kristján Jóhannsson og Jóhann Ingi Kristjánsson eiga til helminga.

Í tilkynningu á vef Arion segir að gert sé ráð fyrir íbúðabyggð í Arnarlandi þar sem heimilt er að reisa allt að 451 íbúðareiningu, samtals um 50.000 fermetra af íbúðarhúsnæði. Einnig sé heimild fyrir allt að 5.400 fermetrum af atvinnuhúsnæði á svæðinu, en hluti byggingarréttar til atvinnuhúsnæðis hefur þegar verið seldur frá félaginu.

Eignarhlutur Arion í Arnarlandi var bókfærður á 1,6 milljarða króna í árslok 2024. Bankinn færði upp bókfært virði eignarhlutarins á fyrsta ársfjórðungi og voru nettó áhrif eftir skatt af matsbreytingu á eignum Landeyjar á samstæðu Arion um 1,1 milljarður króna.

Teikning af Arnarlandinu sem fylgir með tilkynningu Arion banka.

„Það náðist ánægjulegur áfangi á fjórðungnum þegar deiliskipulag Arnarlandsins í Garðabæ var samþykkt. Markmiðið með nýju deiliskipulagi er að skapa líflegt hverfi með íbúðum, þjónustu og atvinnustarfsemi. Hverfið verður fjölbreytt og er gert ráð fyrir um 450 íbúðum, nærþjónustu og starfsemi heilsuklasa þar sem áhersla er á fyrirtæki tengd heilsu og hátækni,“ sagði Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka, í afkomutilkynningu Arion vegna fyrsta ársfjórðungs.

Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka hf. hefur umsjón með söluferli á hlutafé Arnarlands.

Heimild: Vb.is