Home Fréttir Í fréttum 02.07.2025 Þurr­fræs­ing, styrk­ing og endur­bætur á Hring­vegi í Öræf­um

02.07.2025 Þurr­fræs­ing, styrk­ing og endur­bætur á Hring­vegi í Öræf­um

19
0
Kvíá í Öræfum Mynd: Mbl.is

Vegagerðin býður hér með út breikkun vegar með þurrfræsingu, útlögn burðarlagsefnis og tvöfalda klæðingu á Hringvegi á Breiðamerkur- og Skeiðarársandi.

Helstu magntölur eru áætlaðar:
Styrktarlag
3.700 m3
Burðarlag
2.400 m3
Þurrfræsing
60.528 m2
Tvöföld klæðing
60.528 m2
Frágangur fláa
40.000 m2

Verklok eru 15. september 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 20. júní 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 miðvikudaginn 2. júlí 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.