Home Fréttir Í fréttum Kaupir Sam­verk á Hellu út úr þrota­búi Kamba

Kaupir Sam­verk á Hellu út úr þrota­búi Kamba

78
0
Finnbogi Geirsson, forstjóri og stofnandi Stjörnublikks. Ljósmynd: Aðsend mynd

Forstjóri Stjörnublikks, sem er að kaupa glerverksmiðjuna Samverk, gerir ráð fyrir 25 starfsmönnum á Hellu.

Stjörnublikk, ein stærsta blikksmiðja landsins, hefur náð samkomulagi um kaup á glerverksmiðjunni Samverk á Hellu úr þrotabúi Kamba byggingavara. Viðskiptin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.

Finnbogi Geirsson, forstjóri og eigandi Stjörnublikks, segir í samtali við Viðskiptablaðið að með kaupunum vilji félagið koma starfsemi glerverksmiðjunnar á Hellu aftur í gang. Hann gerir ráð fyrir að þar verið störf fyrir um 25 manns.

„Ég er fæddur og uppalinn Rangæingur og lít því á þetta sem samfélagsskyldu hjá mér að kaupa Samverk og koma starfseminni á Hellu af stað.“

Kambar byggingavörur sóttu um gjaldþrotaskipti þann 2. apríl síðastliðinn og sagði samhliða upp ríflega sextíu starfsmönnum félagsins. Félagið starfrækti glerverksmiðju á Hellu, gluggaframleiðslu í Þorlákshöfn, álframleiðslu í Hafnarfirði og skrifstofur og lager í Kópavogi.

Besta rekstrarár í 35 ára sögu Stjörnublikks
Stjörnublikk í Kópavogi var stofnað af Finnboga árið 1990 og byrjaði sem hefðbundin blikksmiðja, en hefur síðan vaxið og dafnað. Félagið sérhæfir sig í loftræstikerfum, klæðningu hitaveituröra og uppsetningu á læstum klæðningum.

Árið 2008 keypti Stjörnublikk fyrirtækið Timbur og stál og hefur síðan haslað sér völl í framleiðslu á bárujárni og ýmiskonar klæðningum. Í fyrra hóf félagið sölu á þakrennum og niðurföllum.

Skjáskot af Vb.is

Stjörnublikk velti 3 milljörðum króna árið 2024, sem samsvarar 20% vexti frá fyrra ári þegar félagið velti 2,5 milljörðum króna. Hagnaður Stjörnublikks í fyrra nam 530 milljónum króna, samanborið við 274 milljónir árið áður. Ársverk í fyrra voru 84,6.

Eignir félagsins voru bókfærðar á 1,9 milljarða króna í árslok 2023 og eigið fé var um 1,4 milljarðar.

Heimild: Vb.is