Góður gangur er á framkvæmdum við meðferðarkjarna og verkefnið gengur samkvæmt áætlun. Nú stendur yfir mikil innivinna og frágangur á ýmsum svæðum hússins, þrátt fyrir að sumarleyfi hafi áhrif á mannafla á næstu vikum.
Á fimmtu og sjöttu hæð hússins er unnið við frágang á legudeildum, þar sem m.a. fer fram lagning gólfefna og undirbúningur fyrir frekari innivinnu. Í kjallara byggingarinnar er verið að leggja lagnir í gólf og sinna umfangsmikilli málningarvinnu sem mun halda áfram í júlí og ágúst.
„Áfram er unnið að frágangi útveggja, þar sem lögð er áhersla á verkþætti eins og uppsetningu glugga og hurða, þéttingarskil, og frágang á þakköntum. Á fjórðu hæð fer fram þétting útveggja við inntaksrými hússins.
Þakvinnan heldur áfram þar sem unnið er að lagningu einangrunar, sandfyllingu og yfirborðsfrágangi, ásamt vinnu við loftræsihýsi á þaki. Einnig er í gangi vinna við frágang inngarða í kjallara, sem síðar verða græn svæði innan byggingarinnar og skapa náttúrulega lýsingu fyrir starfsfólk.
Í sumar og fram á haust verður unnið áfram að mörgum lykilverkhlutum hússins og ný verk hefjast á flestum hæðum. Þrátt fyrir minni mönnun vegna sumarleyfa verður áfram unnið skipulega að framvindu verkefnisins til að tryggja áframhaldandi góðan gang framkvæmda, “segir Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur NLSH.
Heimild: NLSH.is