Home Fréttir Í fréttum Vilja nýjan stíl í gömlu Reykjavík til að segja sögu byggingarlistar

Vilja nýjan stíl í gömlu Reykjavík til að segja sögu byggingarlistar

16
0
Horft yfir Þingholtið í Reykjavík. RÚV – Birgir Þór Harðarson

Íbúar í Þingholtunum gagnrýna að Batteríið arkitektar, sem hönnuðu nýja miðbæinn á Selfossi, skuli vilja nýjan stíl á nýbyggingu í Þingholtunum í Reykjavík.

Við Þingholtsstræti 21 stendur til að byggja ofan á hús sem er hundrað ára grunnur, og svo annað bakhús sem stendur við Ingólfsstræti. Íbúar gagnrýna nýju byggingarnar sem eiga að rísa, og telja mikilvægt að raska ekki gömlu götumyndinni en arkitektar húsanna segja óþarfa að endurtaka það sem áður hefur verið gert.

Hópur sem kallar sig Arkitektauppreisnin telur að hér sé frábært tækifæri til að byggja í anda gömlu húsanna í Þingholtunum, og fara sömu leið og aðrar borgir, til dæmis í gamla bænum í Stokkhólmi, þar sem skylt er að byggja í gömlum stíl. Minjastofnun er einnig meðal þeirra sem gert hafa athugasemd við útlit nýju byggingarinnar og telur að betur færi á að hún fylgdi gömlu götumyndinni.

Tillögur arkitekta Batterísins ofar og tillögur Arkitektauppresnarinnar neðar.
Arkitektauppreisnin

„Hér í Þingholtunum ríkir ákveðinn staðarandi, og einkennandi hús fyrir þetta svæði eru þessi timburhús, sweitserstíll, og þessi bárujárnshús,” segir Þórhallur Bjarni Björnsson, talsmaður Arkitektauppreisnarinnar. „Við teljum ekki að þó það séu til nýrri hús og einhver fúnkishús sem hafa verið byggð eftir þann tíma að það afsaki endilega það að byggja eitthvað sem ekki er í samræmi við götumyndina.“

Þórhallur segir að það skjóti skökku við að arkitektar sem hönnuðu nýja miðbæinn á Selfossi, skuli nú vilja nýjan stíl í gömlu Reykjavík.

Arkitektarnir eru því ósammála, og segja mikilvægt að segja sögu byggingarlistar með nýbyggingum, enda margbreytilegur byggingarstíll við Þingholtsstræti, og heiðarlegra að taka mið af húsunum.

„Við viljum ekki endilega apa eftir því sem er hérna heldur taka frekar hlutföll og ákveðinn skala í húsunum, það er að segja í í gluggum og öðru slíku og segja þannig sögu byggingarlistar og vera þá frekar að bæta hérna við heldur en að endurtaka það sem hefur verið gert,” segir Sigurður Einarsson, hjá Batteríið arkitektar, sem hönnuðu nýbyggingarnar að Þingholtsstræti 21.

Heimild: Ruv.is