Eldur kviknaði í Efnalauginni Björg á Háaleitisbraut í nótt. Voru bæði lögreglubílar og slökkviliðsbílar sendir á vettvang.
Í samtali við fréttastofu RÚV sagði slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu að fyrsti slökkviliðsbíllinn hefði mætt á staðinn klukkan um tíu mínútur yfir tvö. Búið var að ná tökum á eldinum fyrir um korter í þrjú um nótt. Slökkviliðið tók fram að sprengingar hefðu orðið í efnalauginni þegar slökkviliðsmenn komu á staðinn.

Þorsteinn Magnússon
Ekkert er ljóst um orsök eldsins og ekki er talin hætta af bruna efnanna í byggingunni. Í tilkynningu segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ljóst að mikið eignatjón hafi orðið.
Heimild: Ruv.is