Bíllinn sem logaði við munna Norðfjarðargöngunum var hlaðinn þrjú þúsund lítrum af málningu og þrjú þúsund lítrum af olíu. Hann varð því alelda á mjög skömmum tíma en ökumaður komst út af sjálfsdáðum og slapp ómeiddur.
Loka þurfti tímabundið fyrir umferð og Norðfjarðargöngin eftir að kviknaði í vegmerkingabíl verktaka á vegum Vegagerðarinnar. Útkallið barst klukkan korter í fjögur í dag en þá var bíllinn í um 1-2 kílómetra fjarlægð frá göngunum við Norðfjarðará í Norðfirði.
Fram kemur í færslu frá slökkviliði Fjarðabyggðar að boðað hafi verið út frá tveimur stöðvum og að slökkvistörf hafi gengið greiðlega. Notast var við mónitór á tveimur slökkvibílum með 1/7 froðu og í kjölfarið var vatn notað til kælingar á olíutönkum.

Slökkvilið Fjarðabyggðar
Norðfjarðargöngum var lokað Eskifjarðarmegin á meðan öryggi á vettvangi var tryggt en að slökkvistarfi loknu var farið í að tæma þá olíutanka sem farið höfðu að leka og sinnir slökkviliðið nú vöktun á vettvangi þar til unnt verður að fjarlægja bílinn síðar í kvöld.
„Atvikið átti sér stað utan vatnsverndarsvæðis, en einnig þykir mikil mildi að bifreiðin hafi ekki verið komin inn í göngin þegar eldurinn kviknaði, þar sem það hefði gert slökkvistörf mun flóknari og krefjandi,“ segir í færslunni.
Slökkvilið Fjarðabyggðar birti myndirnar hér að neðan af slökkvistarfinu.

Slökkvilið Fjarðabyggðar

Slökkvilið Fjarðabyggðar

Slökkvilið Fjarðabyggðar

Slökkvilið Fjarðabyggðar
Heimild: Visir.is