Home Í fréttum Framkvæmdir í gangi Vesturbæjarlaug lokuð í mánuð í viðbót

Vesturbæjarlaug lokuð í mánuð í viðbót

22
0
Svona er umhorfs í Vesturbæjarlaug þessa dagana. Búið er að byggja yfir laugarkarið til að sinna viðhaldi. – Reykjavíkurborg

Vesturbæjarlaug í Reykjavík verður lokuð fram til 15. júlí. Laugin hefur verið lokuð frá því í lok maí vegna framkvæmda, sem reyndust umfangsmeiri en áætlað var.

Vesturbæjarlaug í Reykjavík verður lokuð tæpum mánuði lengur en til stóð. Laugin hefur verið lokuð síðan í lok maí og átti að opna aftur á mánudag.

Þar sem eitt sinn voru sánaklefar í Vesturbæjarlaug. Myndin er tekin í lok apríl.
RÚV – Ragnar Visage

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að komið hafi í ljós að þörf sé á frekari múrviðgerðum en áætlað var. Laugarkerið hafi reynst í verra ásigkomulagi en gert var ráð fyrir. Nú er stefnt á að laugin verði opnuð 15. júlí.

Fleiri framkvæmdir eru á dagskrá í Vesturbæjarlaug.

Mynd– Reykjavíkurborg

Eins og fjallað hefur verið um hafa framkvæmdir á sánaklefum laugarinnar staðið yfir og valdið tímabundnum lokunum síðustu mánuði.

Á meðan ekki er hægt að opna laugina vegna vinnu við laugarkerið er tíminn nýttur í framkvæmdir við sánaklefana, en auk þess eru framkvæmdir í afgreiðslu og verið er að setja upp nýtt neyðarkerfi í lauginni.

Heimild: Ruv.is