Home Fréttir Í fréttum SÚN framkvæmt fyrir um 800 milljónir á undanförnum mánuðum

SÚN framkvæmt fyrir um 800 milljónir á undanförnum mánuðum

42
0
Mynd: Austurfrett.is

Beinar fjárfestingar Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN) í framkvæmdum nema um 800 milljónum á síðasta ári og fyrstu mánuðum þessa árs. Aldrei var ráðist í umfangsmeiri framkvæmdir fyrir félagið en í fyrra. Félagið skilaði samt yfir 100 milljónum í hagnað á síðasta ári.

Þetta kom fram á aðalfundi SÚN fyrir skemmstu. Fundurinn var haldinn í Múlanum, samvinnuhúsi sem SÚN hefur byggt en viðbygging hússins var tekin formlega í notkun um sjómannadagshelgina.

Í skýrslu Magnúsar Jóhannssonar, stjórnarformanns, kom fram að félagið hefði aldrei lagt jafn mikið í framkvæmdir, annars vegar við bygginguna, hins vegar endurgerð íþróttavallarins í Neskaupstað. Hann var líka formlega tekinn í notkun um sjómannadagshelgina og ber heitið SÚN-völlurinn.

Í fyrra var völlurinn var breikkaður, nýtt gervigras lagt á hann ásamt lýsingu og vökvunarkerfi. Nú í júní var síðan stúku komið upp fyrir ofan hann. Alls eru framkvæmdir við hann metnar á um 300 milljónir króna. SÚN afhendir síðan völlinn til Fjarðabyggðar sem þáði hann að gjöf.

Framkvæmdir við völlinn og styrkirnir voru í fyrra samanlagt um 300 milljónir króna og flokkast sem samfélagsstyrkir SÚN.

Múlinn er fyrrum húsnæði verslunarinnar Nesbakka sem SÚN keypti og gerbreytti yfir í samvinnuhúsið, sem opnað var árið 2021. Viðbyggingin er um 750 fermetrar, um 50 starfsmenn vinna í húsinu og þar eru um 20 fyrirtæki, félög og stofnanir með starfsemi.

Eðlilega skilaði félagið minni hagnaði en undanfarin ár, en hann var engu að síður 108 milljónir. Það stendur hins vegar einstaklega vel með 20 milljarða í eignir. Félagar líta því björtum augum til framtíðarinnar, að sögn stjórnarformannsins.

Heimild: Austurfrett.is