Home Fréttir Í fréttum Hvað þýðir að byggja eigi fyrsta öryggisfangelsið?

Hvað þýðir að byggja eigi fyrsta öryggisfangelsið?

39
0
Yfirlitsmynd af fyrirhuguðu öryggisfangelsi að Stóra-Hrauni. Fangelsið mun samanstanda af fjölda bygginga og vera með rammgerðar girðingar allt í kring. Inn í fangelsisgarðinum er á þessari mynd gert ráð fyrir fótboltavelli. Mynd/Stjórnarráðið

Byggja á nýtt fang­elsi í landi Stóra-Hrauns á kom­andi árum og mun það taka við Litla-Hrauni sem stærsta fang­elsi lands­ins. Verðmiði þess hef­ur hækkað nokkuð frá því að fram­kvæmd­in var fyrst kynnt í fyrra.

Stóra-Hraun verður fyrsta ör­ygg­is­fang­elsi lands­ins, en ekk­ert fang­elsi hér á landi hef­ur hingað til verið flokkað sem ör­ygg­is­fang­elsi þó að Litla-Hraun hafi verið notað sem slíkt. En hvað felst í að fang­elsi verði að ör­ygg­is­fang­elsi og af hverju var t.d. ekki fang­elsið á Hólms­heiði byggt sem slíkt, en það var opnað árið 2016?

Úr 14,4 millj­örðum í 17,8 millj­arða

Nýtt fang­elsi að Stóra-Hrauni var kynnt í fyrra af þá ver­andi dóms­málaráðherra. Var þá horft til að mann­virkið yrði klárað í lok árs 2028 og myndi kosta 14,4 millj­arða. Ákveðið var að fara í bygg­ingu nýs fang­els­is í stað end­ur­bóta á Litla-Hrauni vegna mik­ils kostnaðar sem áætlað var að end­ur­bæt­urn­ar myndu kosta.

Í síðasta mánuði var birt til­kynn­ing á vef Stjórn­ar­ráðsins þar sem frek­ari upp­lýs­ing­ar voru sett­ar fram um fram­kvæmd­ina. Kom þar meðal ann­ars fram að áætlaður kostnaður sé nú 17,8 millj­arðar við fyrsta áfanga verk­efn­is­ins, en sá kostnaður er sagður falla á árin 2026 til 2030. Er það 3,4 millj­örðum meira en kynnt hafði verið í nóv­em­ber, um hálfu ári áður.

Áður hafði verið greint frá því að kostnaður­inn hefði þegar tvö­fald­ast frá því að fyrsta var til­kynnt um nýtt fang­elsi árið 2023, en þá var áætlað að kostnaður­inn yrði um sjö millj­arðar.

Von­ast er til að fram­kvæmd­ir geti haf­ist fljót­lega, en í kjöl­far fyrsta áfanga er svo áætlað að hefja seinni áfang­ann.

84 klef­ar fyrst um sinn

Í fyrsta áfanga verks­ins er gert ráð fyr­ir 84 klef­um á Stóra Hrauni og þangað til fang­elsið verður full­byggt verði nokkr­ir klef­ar á Litla Hrauni notaðir sam­hliða. Er því gert ráð fyr­ir að pláss verði fyr­ir um 90 til 98 fanga á hverj­um tíma. Þegar fang­elsið að Stóra Hrauni verður full­byggt er gert ráð fyr­ir að það geti hýst allt að 128 fanga.

Þegar und­ir­bún­ing­ur stóð yfir við gerð fang­els­is­ins á Hólms­heiði var oft talað um hér á landi skorti ör­ygg­is­fang­elsi og kom það meðal ann­ars fram í ræðum þing­manna. Hins veg­ar varð niðurstaðan að byggja fang­elsi sem flokk­ast sem gæslu­v­arðhalds- og mót­tökufang­elsi.

Blaðamanni lék for­vitni á að vita hver mun­ur­inn er á slíku fang­elsi og ör­ygg­is­fang­elsi, af hverju Hólms­heiði var ekki byggt sem ör­ygg­is­fang­elsi og líka hvort Litla-Hraun í dag sé ekki talið sem ein­hvers­kon­ar ör­ygg­is­fang­elsi.

Hólms­heiði átt að vera „mjög sveigj­an­legt í notk­un“

Í svör­um dóms­málaráðuneyt­is­ins kem­ur fram að eitt af mark­miðum með bygg­ingu fang­els­is­ins á Hólms­heiði hafi verið að byggja nýtt fang­elsi í stað eldri og minni fang­elsa í Reykja­vík sem var lokað með til­komu Hólms­heiðar. Þá átti nýja fang­elsið að sjá um gæslu­v­arðhald til skemmri tíma og geta séð um fanga í ein­angr­un og að vera með lokaða deild fyr­ir kon­ur í afplán­un.

„Fang­els­inu var ætlað að vera mjög sveigj­an­legt í notk­un og geta sinnt mörg­um ólík­um verk­efn­um á sama tíma. Fang­elsið virk­ar vel í þeim til­gangi en við hönn­un þess og bygg­ingu var ekki horft til staðlaðra viðmiða um ör­ygg­is­stig,“ seg­ir í svari ráðuneyt­is­ins.

Fang­elsið á Hólms­heiði flokk­ast ekki sem ör­ygg­is­fang­elsi held­ur gæslu­v­arðhalds- og mót­tökufang­elsi. mbl.is/Á​rni Sæ­berg

Fjög­ur mis­mun­andi ör­ygg­is­stig í lokuðum fang­els­um

Örygg­is­stig­in sem vísað er í eru fjög­ur, frá 0 og upp í 3, en til að flokk­ast sem ör­ygg­is­fang­elsi þarf fang­elsi að vera á stig­um 0 og upp í 2, þar sem stig 0 fel­ur í sér mest­ar ör­yggis­kröf­ur. Fang­elsi á ör­ygg­is­stigi 3 geta verið lokuð fang­elsi, en þau telj­ast þó ekki ör­ygg­is­fang­elsi.

Seg­ir í svari ráðuneyt­is­ins að ef fang­elsið á Hólms­heiði hefði átt að vera ör­ygg­is­fang­elsi og þar með alla­vega á ör­ygg­is­stigi 2 hefði hús­næðið þurft að vera tals­vert stærra og öll ytri um­gjörð þess og aðgangs­stýr­ing mun um­fangs­meiri. Slíkt hefði þó kallað á meiri kostnað. Sem fyrr seg­ir var því ákveðið að Hólms­heiði yrði gæslu­v­arðhalds- og mót­tökufang­elsi sem flokk­ast á ör­ygg­is­stigi 3, en ekki ör­ygg­is­fang­elsi.

Er ekki ör­ygg­is­fang­elsi en notað sem slíkt

Ef við snú­um okk­ur aft­ur að Litla-Hrauni og Stóra-Hrauni þá hef­ur Litla-Hraun ekki upp­fyllt þau skil­yrði sem sett eru til að fang­elsi geti tal­ist sem ör­ygg­is­fang­elsi. „Það hef­ur þó engu að síður verið notað sem slíkt en af­leiðing­arn­ar eru erfiðara er að tryggja ör­yggi fanga og starfs­manna nægj­an­lega vel. Aðbúnaður þar er ekki held­ur nægj­an­lega góður til þess að tryggja rétt­indi allra fanga, sér­stak­lega þeirra sem vist­ast við mikl­ar ör­yggisaðstæður,“ seg­ir í svari ráðuneyt­is­ins.

Stóra-Hrauni er hins veg­ar ætlað að bæta þetta upp og mun það starfa á ör­ygg­is­stigi 2 sam­kvæmt svar­inu. Þá verða einnig klef­ar og aðstaða á ör­ygg­is­stigi 1 og jafn­framt verður hægt að hafa hluta fang­els­is­ins á ör­ygg­is­stigi 3 ef þarf, þ.e. á sama ör­ygg­is­stigi og Hólms­heiði er í dag.

Ekki verður þó um há­marks­ör­ygg­is­fang­elsi að ræða (ör­ygg­is­stig 0), eða það sem á ensku kall­ast „max­im­um secu­rity pri­son“.

Önnur yf­ir­lits­mynd af fang­els­inu sem byggt verður á Stóra-Hrauni, en sú jörð stend­ur við hlið Litla-Hrauns, þar sem nú er stærsta fang­elsi lands­ins. Tölvu­mynd

Eins og sjá má á teikn­ing­um sem birt­ar hafa verið af fyr­ir­huguðu fang­elsi á Stóra-Hrauni mun það sam­an­standa af nokkr­um bygg­ing­um og stór­um fang­els­is­garði, sem skipt verður upp, en sam­kvæmt teikn­ingu verður meðal ann­ars fót­bolta­völl­ur í garðinum. Í kring­um garðinn verður svo margþátta girðing eða ann­ars kon­ar fyr­ir­staða til að koma í veg fyr­ir að ein­hver kom­ist inn eða út.

Heimild: Mbl.is