Home Fréttir Í fréttum Þurfa að reikna sótspor bygginga og nýtt loftslagsvænt steinlím handan við hornið

Þurfa að reikna sótspor bygginga og nýtt loftslagsvænt steinlím handan við hornið

35
0
Þróun nýs steinlíms í stað sements hefur gengið vel og Gerosion áformar að koma upp sinni eigin framleiðslu. Þórgunnur Oddsdóttir

Íslenskt nýsköpunarfyrirtæki hefur þróað loftlagsvænt steinlím í stað sements. Hægt væri að minnka kolefnislosun af mannavöldum umtalsvert með umhverfisvænni byggingarmáta og frá og með september þarf að reikna sótspor bygginga.

Þeir sem byggja þurfa frá og með haustinu að reikna kolefnisspor mannvirkja og viðbúið er að kröfur um umhverfisvænni byggingarmáta verði hertar á næstu árum. Þetta kom fram á umhverfisráðstefnu Austurbrúar á Egilsstöðum á dögunum.

Þurfa að endurhugsa byggingarmáta, efnisval og hönnun

„Frá og með 1. september þá þarf að reikna kolefnisspor byggingarinnar samhliða því að sótt er um byggingarleyfi. Og reyndar líka samhliða því að sótt er um lokaúttekt þannig að þá þarf að uppfæra reikningana. Þetta þýðir að menn þurfa núna hér með að vera meðvitaðir um hvernig þeir byggja og hvers konar efni eru notuð í húsunum og hvernig byggingarnar eru hannaðar. Til að byrja með erum við aðeins að biðja menn um að reikna þetta. Og svo getum við búist við því að eftir nokkur ár að þá munum við taka saman það sem við vitum og þá byrjum við að setja einhver viðmið og eitthvað svona hámarksþak eins og þeir eru byrjaðir að gera á Norðurlöndunum,“ segir Alexandra Kjeld, sérfræðingur hjá Eflu verkfræðistofu.

Sementsframleiðsla veldur allt að 10% af kolefnislosun af mannavöldum

Sjónir beinast ekki síst að steinsteypunni því sementsframleiðsla er stór losunarvaldur. Sunna Ólafsdóttir Wallevik er framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækjanna Gerosion, Álvit og Rockpore. Þau hafa meðal annars þróað loftslagsvænt steinlím í stað sements og fylliefni sem eru léttari og hægt að endurnýta. Næsta skref er að setja upp framleiðslu og í verkefnin hafa fengist miklir styrkir og fjárfestingar enda til mikils að vinna.

Sement, sem er bindiefnið í steypunni, er mest framleidda efni í heiminum. Bara sementsframleiðslan er allt að 10% af koldíoxíðlosun manna af völdum í heiminum er talið. Og byggingariðnaðurinn getur verið alveg upp að 30-40%. Þannig að það er hægt að hafa svo mikil áhrif á minnkun gróðurhúsalofttegunda ef við gerum byggingariðnaðinn umhverfisvænni,“ segir Sunna Ólafsdóttir Wallevik. Hún fékk á dögunum viðurkenningu úr Nýsköpunarsjóði Prófessors Þorsteins Inga Sigfússonar fyrir frumkvöðlastarf á sviði jarðhita, byggingariðnaðar og orkufreks iðnaðar.

Heimild: Ruv.is