Home Fréttir Í fréttum First Water hafnar ásökunum

First Water hafnar ásökunum

57
0
First Water hefur greitt Hraundröngum að fullu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fyr­ir­tækið First Water hafn­ar því al­farið að bera ábyrgð á deilu eins og kynnt var í frétt­um Sýn­ar fimmtu­dag­inn 12. júní, þar sem fjallað var um átök milli bygg­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Hraun­dranga og und­ir­verk­taka þess. Í frétt­inni kom fram að First Water skuldaði Hraun­dranga 200 millj­ón­ir króna, en sam­kvæmt yf­ir­lýs­ingu First Water á sú full­yrðing sér enga stoð í raun­veru­leik­an­um.

Í til­kynn­ingu til hlut­hafa seg­ir Eggert Þór Kristó­fers­son, for­stjóri First Water, að rift­un verk­samn­ings við Hraun­dranga hafi byggst á lög­form­leg­um for­send­um, þar á meðal vegna veru­legra tafa, ófull­nægj­andi verkliða og brota á samn­ings­ákvæðum. Öll skref hafi verið tek­in í sam­ráði við lög­menn fé­lags­ins.

Heimild: Mbl.is