Home Fréttir Í fréttum Varavatnslögn í smíðum — almannavarnir segir bæjarstjóri

Varavatnslögn í smíðum — almannavarnir segir bæjarstjóri

36
0
Gangi áætlanir eftir hefst lagning varavatnslagnar milli lands og Eyja á næsta ári. Aðsend – Vestmannaeyjar

Bæjarstjórinn í Eyjum segir að varavatnslögn teljist almannavarnir. Hún vill að ríkið borgi lögnina.

Varavatnslagnar er að vænta til Vestmannaeyja á næsta ári. Eftir að eina vatnslögnin til Eyja laskaðist jókst þörf fyrir varalögn, bæjarstjóri segir hana flokkast undir almannavarnir og vill að ríkið taki meiri þátt í kostnaði.

Smíði lagnarinnar á að ljúka síðsumars á næsta ári og þá verður hafist handa við að leggja hana milli lands og Eyja. Eina vatnslögnin til Vestmannaeyja laskaðist í nóvember 2023 þegar akkeri togara rann út og lenti á henni.

Í desember í fyrra var svo ákveðið að leggja aðra lögn, eins og þá sem skemmdist. Ríkið greiðir 800 milljónir, sem er helmingurinn af kostnaði við smíði lagnarinnar, en svo bætist við kostnaður við að leggja hana.

Hver greiðir rest? „Íbúar í Vestmannaeyjum eins og staðan er í dag. Við erum ekki sátt við það. “

Að mati Írisar er um almannavarnir að ræða. Engar aðrar leiðir séu fyrir Vestmannaeyinga að fá vatn – ekkert megi út af bregða. „Það getur komið upp almannavarnaástand og þess vegna er þetta almannavarnalögn. Hún er til að grípa inn í ef illa fer. Auðvitað finnst okkur að ríkið eigi að greiða hér, eins og alls staðar annars staðar á landinu fyrir það sem eru almannavarnir. Við erum ekki búin að ná þeirri niðurstöðu að þetta verði algerlega á ábyrgð ríkisins en við munum halda áfram í því samtali,“ segir Íris.

Heimild: Ruv.is