Home Fréttir Í fréttum Höfðu fulla heimild fyrir steypuleyfinu

Höfðu fulla heimild fyrir steypuleyfinu

115
0
Yfirlýsing nægði fyrir leyfi. Ljósmynd/Aðsend

„Það er ekki rangt að við höf­um gefið leyfi til að steypa, en það er rangt að við höf­um gefið leyfið án þess að burðar­virkisteikn­ing­ar lægju fyr­ir, því við vor­um með yf­ir­lýs­ingu frá burðarþols­hönnuði um að burðarþol húss­ins þyldi aukna þyngd af steypu­álagi á þökin,“ seg­ir Reyn­ir Kristjáns­son bygg­ing­ar­fræðing­ur vegna frétt­ar Morg­un­blaðsins í gær.

Hafði ekki eft­ir­lit með hönnuðum

Þar kom fram að eft­ir­litsaðili á veg­um Verk­sýn­ar hefði gefið steypu­leyfi án þess að samþykkt­ar burðarþol­steikn­ing­ar lægju fyr­ir við steypu­vinnu á þaki Brákar­borg­ar.

Hann seg­ir Verk­sýn ekki hafa haft eft­ir­lit með hönnuðum held­ur haldi aðal­hönnuður utan um hönn­un­ar­pakk­ann.

Lesa má nán­ar um málið á bls. 10 í Morg­un­blaðinu og í Mogga-app­inu í dag.

Heimild: Mbl.is