Home Fréttir Í fréttum Mygla á rannsóknarstofu sjúkrahússins

Mygla á rannsóknarstofu sjúkrahússins

38
0
Ljóst var í síðustu viku að umfangið var meira en gert var ráð fyrir. Mynd: Mbl.is

Mygla fannst á rann­sókn­ar­stofu Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri í síðustu viku og þarf nú að færa starf­sem­ina annað tíma­bundið.

Þetta seg­ir Hildigunn­ur Svavars­dótt­ir, for­stjóri Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri, í sam­tali við mbl.is.

Hún seg­ir að í vet­ur hafi komið upp grun­ur um að það væri mygla á stof­unni. Fyrstu rann­sókn­ir bentu til þess að mygl­an væri af­mörkuð en í síðustu viku kom í ljós að um­fangið væri mun meira en gert var ráð fyr­ir í upp­hafi.

Mygl­an fannst í gólfi rann­sókn­ar­stof­unn­ar en upp­haf­lega var talið að hún væri í út­veggj­um.

Hildigunn­ur Svavars­dótt­ir, for­stjóri Sjúkra­húss­ins á Ak­ur­eyri. Mbl/​Mar­grét Þóra Þórs­dótt­ir

Mik­il áskor­un fyr­ir sjúkra­húsið

Hildigunn­ur seg­ir að þetta sé mik­il áskor­un fyr­ir sjúkra­húsið en að áfram verði reynt að halda áfram starf­sem­inni án mik­illa rask­ana. Rann­sókn­ar­stof­an verður færð í annað rými inn­an veggja sjúkra­húss­ins.

„Rann­sókn­ar­stof­an gegn­ir svo mik­il­vægu hlut­verki þannig við verðum að hafa þetta inn­an sjúkra­húss­ins en það kost­ar nátt­úru­lega til­fær­ing­ar á ein­hverju öðru. Það er það sem við erum núna að vinna hörðum hönd­um að. Það mun skýr­ast á næstu dög­um,“ seg­ir Hildigunn­ur.

Rýma þarf rann­sókn­ar­stof­una en unnið er nú að því að af­marka myglu­svæðið.

Heimild: Mbl.is