Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 26.06.2025 Viðhald gatna og stíga 2025 á Akranesi

26.06.2025 Viðhald gatna og stíga 2025 á Akranesi

17
0
Akranes. mbl.is/Árni Sæberg

Akraneskaupstaður óskar eftir tilboðum í viðhald á götuyfirborði og gangstéttum og nýgerð gangstétta.

Um er að ræða uppbrot og fjarlægingu steypts yfirborðs, fræsing malbiks, malbikun og gerð kantsteins, steypu gatna og stétta, hellulögn gönguþverana ásamt ýmsum frágangi. Verkefnin eru dreifð um Akranes.

Helstu magntölur:

  • Fræsing 1.300 m2
  • Malbikun 5.000 m2
  • Stéttar 1.200 m2
  • Götuflekar 400 m2
  • Hellulögn 100 m2

Útboðsgögn eru aðgengileg á rafrænu formi í gegnum útboðsvef Akraneskaupstaðar

Bjóðandi fær staðfestingarpóst þegar hann hefur skilað tilboði. Fundargerð opnunarfundar verður send öllum bjóðendum.

Tilboðum skal skilað á útboðsvefinn fyrir kl. 14:00 fimmtudaginn 26. júní 2025.

Sjá frekar.