Home Fréttir Í fréttum Allt að 40 íbúðir á nýrri lóð á Ægisíðu

Allt að 40 íbúðir á nýrri lóð á Ægisíðu

12
0
Í gamla bensínstöðvarhúsinu verða bæði þjónusturými og litlar íbúðir. Torg verður í kringum kuðunginn. Tölvumynd/Trípólí arkitektar

Fast­eigna­fé­lagið Yrk­ir hef­ur lagt fram fyr­ir­spurn til Reykja­vík­ur­borg­ar um nýtt deili­skipu­lag fyr­ir lóðina við Ægisíðu 102 þar sem bens­ín­stöð var rek­in um ára­tuga­skeið.

Tvær út­færsl­ur eru kynnt­ar í til­lög­unni en báðar fela í sér að fimm fjöl­býl­is­hús­um verður raðað á lóðarmörk­um um­hverf­is gömlu bens­ín­stöðina. Í kring­um bens­ín­stöðina, kuðung­inn svo­kallaða, á að verða til nýtt torg og dval­ar­svæði.

Til­laga Trípóli arki­tekta bar sig­ur úr být­um í hug­mynda­sam­keppni um svæðið en hún hef­ur nú verið þróuð áfram, meðal ann­ars eft­ir at­huga­semd­ir og ábend­ing­ar íbúa í grennd­inni. Í upp­hafi var gert ráð fyr­ir 32 íbúðum en nú eru þær 38 í ann­arri til­lög­unni en 40 í hinni. Upp­haf­leg­ar hug­mynd­ir um þróun reits­ins gerðu ráð fyr­ir allt að 50 íbúðum.

Heimild: Mbl.is