
Samningur milli HN og verktakafyrirtækisins Húsheildar/Hyrnu um byggingu fyrsta hússins á Torfunefssvæðinu hefur verið undirritaður og markar ákveðin skref í uppbyggingu svæðisins.
Pétur Ólafsson hafnastjóri HN segir undirritun marka tímamót í uppbyggingu á Torfunefi og framundan séu spennandi tíma.
Hafnarframkvæmdum er lokið og uppbygging á lóðum á Torfunefsbryggju getur því hafist. Fyrsta verkið verður þjónustuhús fyrir starfsemi hafnarsamlagsins. Jafnframt er búið að bjóða út byggingarétt vegna lóðanna Torfunef 2 og 3.
„Þetta eru skemmtilegir byggingareitir í hjarta Akureyrarbæjar,“ segir Pétur en gert er ráð fyrir að áhugasamir fjárfestar geta byggt upp hús sem hýsa ýmiskonar verslun, þjónustu , veitingastaði, skrifstofur eða vinnustofur. „Torfunefssvæðið mun tengjast miðbæ Akureyrar og Hofi þannig að vonandi mun miðbæjarsvæðið styrkjast til framtíðar.
Lóðirnar við Torfunef 2 og 3, fela í sér alls fimm byggingareiti. Samtals eru lóðirnar tvær 4375 m² að stærð með heildar byggingarmagn upp á 4939 m².
Nordic Office of Architecture í samstarfi við Hafnasamlag Norðurlands stóð að gerð deiliskipulags fyrir Torfunefsbryggju á Akureyri – svæði sem markar tímamót í þróun hafnarsvæðisins og opnar á fjölbreytta framtíðarsýn í hjarta bæjarins sem fjölnota samkomusvæði þar sem samspil borgar- og náttúruupplifunar er í forgrunni.
Þakið verður áhorfendabekkir
„Á þessu stigi er svæðið nú þegar komið í mótun þar sem áætlað er að framkvæmdir hefjist fljótlega á lóðinni Torfunef 1 með uppbyggingu á sjónsteyptri þjónustubyggingu fyrir hafnarstarfsemina. Sú bygging er hönnuð með þeim formerkjum að þakuppbygging byggingarinnar myndar settröppur / áhorfendabekki sem snýr að aðliggjandi torgi, hugsað sem afdrep og dvalarstaður fyrir lifandi starfsemi og viðburði fyrir íbúa og gesti bæjarins í hjarta Akureyrar.“
Heimild: Vikubladid.is