
Fyrirtækið Stólpi, sem áður hét Stólpi Gámar og er í dag dótturfélag Styrkáss, hyggst sækja fram á markaði fyrir húseiningar. Fyrirtækið á í samstarfi við einingaverksmiðju í Tékklandi.
Stólpi býður upp á heildarlausnir fyrir atvinnulífið á sviði gáma- og húseiningalausna auk þess að sinna viðhalds- og viðgerðaþjónustu.
Börkur Grímsson forstjóri Stólpa og Rúnar Höskuldsson framkvæmdastjóri sölusviðs segjast í samtali við Morgunblaðið vera mjög spenntir fyrir framhaldinu. Þeir segja að húseiningalausnir Stólpa standist ýtrustu íslenskar kröfur, bæði útlitslega og byggingarlega. Samstarfsaðilar hér á landi eru verkfræðistofan Efla og arkitektastofan Batteríið. „Húseiningahlutinn er ný stoð í okkar rekstri, sem kemur mjög sterk inn,“ útskýrir Börkur.
Heimild: Mbl.is