Á dögunum bauð Reykhólahreppur út verkið Kúalaug – áningarstaður og voru tilboð opnuð þann 7. apríl sl. Verkefnið, sem er fjármagnað með styrk frá Framkvæmdasjóði ferðamannastaða felst í uppbyggingu áningarstaðar fyrir ferðamenn sem leggja leið sína að Reykhólum.
Verkþættir eru gerð bílastæðis, áningarstaðar og timburstígs yfir Kúalaug með aðstöðu til fótabaða. Um er að ræða 10 bíla stæði, þar af eitt fyrir hreyfihamlaða. Hjólabogar verða auk þess staðsettir á norður hlið bílastæðisins. Áningarstaðurinn er timburpallur sem er aðgengilegur fyri ralla. Grjóthleðsla og gróður skilur að áningarstað og bílastæði.
Frá áningarstaðnum er útsýni yfir Kúalaug til vesturs. Útbúin verður hringleið um svæðið sem er á köflum malarstígar og á köflum timburstígar. Stór hluti hringleiðarinnar er yfir Kúalaug sjálfa og er sá kafli allur á timburbryggju. Útskot verður á timburbryggjunni yfir Kúalaug með aðstöðu fyrir fótlaug. Auk timburstígsins yfir Kúalaug verða tvær minni timburbrýr þar sem stígur þverar læki. Á malarhluta hringleiðarinnar verður á einum stað útskot með bekkjarborði þar sem hægt er að setjast niður. Rör eru undir malarstíg á tveimur stöðum til að taka við vatni sem rennur frá norðri niður í Kúalaug.
Tilboðsgjafi sér um allar framkvæmdir við jarðvinnu, mannvirki, frágang yfirborðs og ræktunarsvæði í tengslum við verkið.
Sjö fyrirtæki fengu útboðsgögn en tvö fyrirtæki skiluðu endanlegum tilboðum. Tilboðin sem komu voru frá Geirnaglanum ehf. og hljóðaði upp á kr. 59.527.500,- og frá Grjótgás ehf. kr. 54.972.850,-. Kostnaðaráætlun hljóðaði upp á kr. 48.296.875,-
Eftir að tilboðin höfðu verið yfirfarin var gengið til samninga við lægstbjóðanda og munu þeir hefja störf í kringum mánaðamótin júní/júlí.
Heimild: BB.is