Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar, óskar eftir tilboðum í smáíbúðir. Um er að ræða átta færanlegar íbúðir í einbýli um 35 m². Eins er óskað eftir verðum í eitt einstaklingsherbergi (anddyri, svefnaðstaða og snyrting) um 15 m².
Umhverfis- og mannvirkjasvið Akureyrarbæjar, óskar eftir tilboðum í smáíbúðir. Um er að ræða átta færanlegar íbúðir í einbýli um 35 m². Eins er óskað eftir verðum í eitt einstaklingsherbergi (anddyri, svefnaðstaða og snyrting) um 15 m². Verkið er boðið út í alútboði. Íbúðirnar og herbergið eru ætlaðar fyrir einstaklinga sem eru með fjölbreyttan vanda og þarf að horfa sérstaklega til þeirra þátta við hönnun húsanna.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar frá og með þriðjudeginum 3. júní 2025.
Vinsamlegast athugið, nauðsynlegt er að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum þess sem kemur til með að undirrita tilboðið rafrænt fyrir hönd fyrirtækisins. Ekki er hægt að notast við Íslykil og ekki á að velja umboð fyrir fyrirtæki í innskráningunni heldur persónuna sjálfa.
Hægt er að nálgast útboðsgögnin með því að smella HÉR!
Gögnin eru aðgengileg sjálfvirkt inn á þjónustugátt Akureyrarbæjar, eru þess vegna ekki send til bjóðanda sérstaklega.
Tilboðum skal skila rafrænt á útboðsvef Akureyrarbæjar eigi síðar en þann 11. ágúst 2025 kl. 15:00.