Kópavogsbær óskar eftir tilboði í verkið:
Geislagarður endurgerð
Verkið felst í endurgerð og endurbótum á Geislagarði í Hamraborg. Rífa þarf allt núverandi efni ofan af steyptri plötu og endurbyggja í samræmi við teikningar arkitekta.
Vakin er sérstök athygli á því að um er að ræða framkvæmd innan um fullbúin íbúðarhúsnæði og því skal framkvæmd unnin í fullu samráði við eftirlit verkkaupa og íbúa á svæðinu.
Útboðsgögn eru aðgengileg í útboðskerfinu TendSign og skulu bjóðendur skila inn tilboði rafrænt inn í TendSign.
Útboðsgögn afhent: | 03.06.2025 kl. 00:00 |
Skilafrestur | 23.06.2025 kl. 13:00 |
Opnun tilboða fer fram með rafrænum hætti í TendSign og verður opnunarskýrsla send öllum bjóðendum eftir opnun.