Home Fréttir Í fréttum Samið um endurbyggingu Gjábakkabryggju í Vestmannaeyjum

Samið um endurbyggingu Gjábakkabryggju í Vestmannaeyjum

19
0
Gjábakkabryggja. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Á fundi framkvæmda- og hafnarráðs á miðvikudag var farið yfir tilboð sem bárust í endurbyggingu Gjábakkabryggju. Fram kemur í fundargerðinni að þann 29. apríl hafi verið opnuð tilboð í endurbyggingu Gjábakka, í stálþilrekstur. Jafnframt segir að engar athugasemdir hafi borist um framkvæmd útboðsins.

Eftirfarandi tilboð bárust:

  • Kranar ehf. 199.583.169 kr.
  • Sjótækni ehf. 225.884.500 kr.
  • Hagtak hf. 229.250.000 kr.
  • Borgarverk ehf. 294.440.878 kr.

Þá segir að tilboðin hafi verið yfirfarin og leiðrétt eftir því sem við á. Vegagerðin leggur til að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda, Kranar ehf.. Ráðið fól hafnarstjóra að ganga til samninga við lægstbjóðanda á grundvelli tilboðs.

Heimild: Eyjafrettir.is