Home Fréttir Í fréttum Smíða brú á milli Rússlands og Norður-Kóreu

Smíða brú á milli Rússlands og Norður-Kóreu

49
0
Loftmynd af framkvæmdasvæðinu. Mynd:NK News

Rússar eru byrjaðir að smíða brú yfir ána Tumen. Mun brúin tengja Rússland og Norður-Kóreu og verður fyrsta vegtengingin á milli þessara tveggja einræðisríkja. Þykir smíði hennar vera til marks um aukin samskipti og samstarf ríkjanna.

Mikhail Mishustin, forsætisráðherra Rússlands, ávarpaði brúarsmiðina og fleiri á miðvikudag í síðustu viku í gegnum fjarfundabúnað og sagði að þetta væri fyrsta brúin, ætluð bílum og öðrum vélknúnum ökutækjum, á milli Rússlands og Norður-Kóreu og marki tímamót í samskiptum ríkjanna.

Brúin verður 4,7 km að lengd, eru aðliggjandi vegir þá meðtaldir. 424 vegtenging verður gerð í Rússlandi og 581 metra vegtengin í Norður-Kóreu að sögn rússnesku Tass ríkisfréttastofunnar. Brúin verður sjö metrar á breidd og smíði hennar mun kosta sem nemur um 14 milljörðum króna.

Verkinu á að vera lokið í árslok 2026 og segja Rússar að með tilkomu hennar muni samskipti íbúa ríkjanna tveggja aukast, fleiri ferðamenn muni fara á milli ríkjanna og vöruskipti muni aukast.

Fyrir er ein brú á milli ríkjanna sem er aðeins ætluð járnbrautarlestum.

Heimild: Dv.is