F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Endurgerð hraðahindrana 2025 – Útboð 1, útboð nr. 16143.
Lauslegt yfirlit yfir verkið :
Verkið felst í endurgerð fjögurra hraðahindrana í Reykjavík þar sem notast á við granít-upprampa og granít-kantsteina.
• Álfheimar við Gnoðarvog
• Skeiðarvogur við Suðurlandsbraut
• Listabraut við Efstaleiti
• Langirimi við Miðgarð
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 13:30, 30. apríl 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 21. maí 2025.