Home Fréttir Í fréttum 13.05.2025 Rangárþing ytra – Íþróttasvæði Hellu Gervigrasvöllur

13.05.2025 Rangárþing ytra – Íþróttasvæði Hellu Gervigrasvöllur

24
0

Rangárþing ytra óskar eftir tilboðum í verkið Rangárþing ytra – Íþróttasvæði Hellu, gervigrasvöllur -Gervigras.

Útboðsverkið felst í útvegun og fullnaðarfrágangi gervigrass með eða án fjaðurlags (in-situ) vegna nýs vallar á Hellu. Gervigrasið skal vera af bestu fáanlegum gæðum og uppfylla FIFA Quality staðal Alþjóðaknattspyrnusambandsins.

Helstu þættir verksins eru:

  • Gervigrasyfirborð alls um 8.588m2
  • Keppnisvöllur 68x105m
  • Heildarstærð 76x113m

Skiladagar verksins eru eftirfarandi:

  • Verklok keppnisvallar – 15. ágúst 2025

Útboðsgögn eru öllum aðgengileg með rafrænum hætti, án endurgjalds á útboðsvef VSÓ Ráðgjafar á vefslóðinni https://vso.ajoursystem.net/  frá og með miðvikudeginum 23. apríl 2025.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef eigi síðar en þriðjudaginn 13. maí kl. 14:00