F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Höfðabakki. Umferðaljós og úrbætur á gönguleiðum, útboð 16138
Framkvæmdin felur í sér endurnýjun umferðarljósa á 5 gatnamótum á Höfðabakka, við Stórhöfða, Dvergshöfða, Bíldshöfða, Vesturlandsveg og Bæjarháls.
Einnig verða gerðar endurbætur m.t.t. umferðaröryggis á gatnamótunum.
Helstu magntölur verksins eru:
- Upprif malbiks, steypu og hella 1.600 m2
- Jarðvinna 400 m3
- Fyllingar 280 m3
- Púkkmulningur 210 m2
- Fráveitulagnir 20 m
- Götuljósastaurar 38 stk
- Umferðarljósastaurar 18 stk
- Malbikun 900 m2
- Steypt stétt 280 m2
- Hellulögn 900 m2
Byggingastjórn: Verktaki tekur að sér hlutverk byggingarstjóra eins og því er lýst í lögum um mannvirki 160/2010 og gildandi byggingarreglugerð.
Áætluð lok framkvæmdatíma: 30. September 2025
Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is – frá kl. 14:30 þann 16. apríl 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00, þann 7. maí 2025.