Hafnarstjórn Vestmannaeyja óskar eftir tilboðum í verkið „Vestmannaeyjar endurbygging Gjábakka 2025“.
Rif, jarðvinna, fylling og þjöppun
|
Steypa 39 akkerissteina
|
Reka niður 83 tvöfaldar stálþilsplötur af gerð AZ30-750 og AZ28-750 og ganga frá stagbitum og stögum
|
Steypa um 125 m langan kantbita með pollum og kanttréi
|
Verklok eru 1. maí 2026.
Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 14. apríl 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. apríl 2025.
Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.