Home Fréttir Í fréttum 10.04.2025 Utanhúsviðgerðir á lögreglustöðinni á Patreksfirði

10.04.2025 Utanhúsviðgerðir á lögreglustöðinni á Patreksfirði

43
0

Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir (FSRE), auglýsir í dag eftir tilboðum í utanhússviðgerðir að Aðalstræti 92 á Patreksfirði fyrir hönd Ríkiseigna.

Húsið hýsir núna lögregluna og sýslumannsembætti Vestfjarða. Verk þetta felur í sér að niðurrif á klæðningu, sprunguþéttingar, endurnýjun glugga og lagfæringar á þaki.

Byggja þarf viðbót við anddyri að byggingunni. Áætlað er að verktími verði um 7 mánuðir eða frá 1. maí 2025 þar til 15. október 2025.

Útboð þetta er aðeins auglýst innanlands.  Tilboðum skal skilað fyrir 10. apríl n.k. kl 12.

Heimild: BB.is