Home Fréttir Í fréttum 15.04.2025 Viðhald húsnæðis Hafnarfjarðarbæjar 2025, endurbætur á þaki Hvaleyrarskóla

15.04.2025 Viðhald húsnæðis Hafnarfjarðarbæjar 2025, endurbætur á þaki Hvaleyrarskóla

78
0
Mynd: Hvaleyrarskóli

Hafnarfjarðabær auglýsir eftir tilboðum í verkið:

Viðhald húsnæðis Hafnarfjarðarbæjar 2025, endurbætur á þaki Hvaleyrarskóla.

Um er að ræða breytta útfærslu á þaki, þ.e. loka núverandi þakgluggum, setja gufuopið vatnsvarnarlag beint á núverandi borðaklæðningu og tvílekta þakið áður en klæðningu er komið á.

Útboðið er almennt opið útboð.

Helstu stærðir hússins:

  • Verktaki á að endurnýja hluta þaksins eða um 1.280 m2 af 4.850 m2.

Helstu magntölur:

  • Rif á þakklæðningu 1.280 m2.
  • Rif á loftaefni innanhúss 1.264 m2.
  • Nýtt rakavarnarlag innanhúss 1.330 m2.
  • Nýr þakdúkur 1.300 m².
  • Nýtt þakjárn 1.280 m2.

Nánari upplýsingar má finna í útboðsgögnum sem eru aðgengileg undir vefslóðinni  https://utbodsgatt.is/hafnarfjordur/endurbaetur-a-thaki-hvaleyrarskola-2025

Tilboðum skal skila rafrænt undir vefslóð útboðsins, eigi síðar en 15. apríl 2025, kl. 11:00, þar sem tilboð verða opnuð að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Sjá frekar.