Home Fréttir Í fréttum 08.04.2025 Malbiksyfirlagnir og fræsingar í Reykjavík 2025, útboð 1, vestan Reykjanesbrautar

08.04.2025 Malbiksyfirlagnir og fræsingar í Reykjavík 2025, útboð 1, vestan Reykjanesbrautar

30
0
Mynd: Reykjavíkurborg

F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:

Malbiksyfirlagnir og fræsingar í Reykjavík 2025, útboð 1, vestan Reykjanesbrautar, útboð nr. 16123.

Lauslegt yfirlit yfir verkið: 
Verkið felst í malbikun og fræsingu gatna Reykjavíkur vestan Reykjanesbrautar og vinnu tengdri þeirri malbikun og fræsingu. Um er að ræða beinar yfirlagnir á eldri slitlög gatna og yfirlagnir og fræsingu á þær götur sem þarf að fræsa.

Útboðsgögn verða eingöngu aðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 10:30 þann 25. mars 2025.

Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.

Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.

Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: kl. 10:00 þann 8. apríl 2025.