Home Fréttir Í fréttum 29.04.2025 Vetrar­þjón­usta 2025-2028, Vest­ur-Ísa­fjarðar­sýsla

29.04.2025 Vetrar­þjón­usta 2025-2028, Vest­ur-Ísa­fjarðar­sýsla

24
0
Mynd: STÖÐ 2/SKJÁSKOT

Vegagerðin býður hér með út vetrarþjónustu, þ.e. snjómokstur og hálkuvarnir með vörubifreið, á Vestursvæði.

Helstu magntölur fyrir hvert tímabil eru:
Akstur vörubifreiða á þjónustuleiðum er áætlaður 31.000 km á ári

Gildistími samnings er þrjú ár, þ.e. veturna 2025-2026, 2026-2027 og 2027-2028. Heimild er til framlengingar samnings í allt að tvö ár með samþykki beggja aðila, eitt ár í senn,

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu TendSign  frá og með föstudeginum 21. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 29. apríl 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.

Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu.