Home Fréttir Í fréttum Mos­fells­bær skrifar undir verksamning við Fagurverk ehf.

Mos­fells­bær skrifar undir verksamning við Fagurverk ehf.

105
0
Mynd: Regína Ás­valds­dótt­ir bæj­ar­stjóri og Berg­ur Þor­gils­son hjá Fag­ur­verk.

Full­trú­ar Mos­fells­bæj­ar og Fag­ur­verks und­ir­rit­uðu samn­ing um lagn­ir og yf­ir­borðs­frág­ang á Varmár­svæði í gær. Fag­ur­verk var lægst­bjóð­andi í verk­ið sem er áfanga­skipt og felst ann­ars veg­ar í fulln­að­ar­frá­gangi und­ir nýtt gervi­gras á knatt­spyrnu­velli við Varmá í Mos­fells­bæ og hins veg­ar í fulln­að­ar­frá­gangi á nýju frjálsí­þrótta­svæði norð­an við nýj­an gervi­grasvöll.

Fyrri áfangi fel­ur í sér frá­g­ang knatt­spyrnu­vall­ar m.a. frá­g­ang fyll­ing­ar, lagn­ingu frá­veitu- og vatns­lagna, vatnúða­kerf­is, snjó­bræðslu og ídrátt­ar­röra fyr­ir ljósamöst­ur ásamt und­ir­bygg­ingu fyr­ir gervi­gras, upp­setn­ingu girð­inga, mal­bik­un stíga og þöku­lagn­ingu nærsvæða við völl.

Seinni áfangi inni­fel­ur frá­g­ang frjálsí­þrótta­svæð­is m.a. frá­g­ang fyll­ing­ar, lagn­ingu frá­veitu- og snjó­bræðslu­lagna og raf­strengja ásamt land­mót­un, mal­bik­un, grjót­hleðslu og öðr­um yf­ir­borðs­frá­gangi.

Verk­inu skal að fullu lok­ið í sam­ræmi við ákvæði út­boðs­gagna þ.e. fyrri áfanga þann 15. júlí 2025 og seinni áfanga 31. okt 2025. Gert er ráð fyrir að búið verði að leggja gervigras á aðalvöllinn 15. ágúst.

Heimild: Mos­fells­bær