F.h. Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar er óskað eftir tilboðum í eftirfarandi verk:
Gufunes, Hamraflatir – Gufunesvegur, – Stígagerð, útboð nr. 16117.
Lauslegt yfirlit yfir verkið :
Stígagerð:
Verkið felst í gerð um það bil 950 m langs malbikaðs stígs frá núverandi stíg sunnan við Gufunesgranda að Gufunesvegi.
Veitulagnir:
Götulýsing: Verkið felur í sér að leggja ídráttarrör og jarðstrengi fyrir stíglýsingu ásamt því að reisa ljósastólpa.
Helstu magntölur í verkinu eru:
- Upprif á malbiki 15 m2
- Sögun á malbiki 28 m
- Gröftur 1.950 m3
- Fylling 3.500 m3
- Mulningur 3.500 m2
- Malbikun 3.300 m2
- Brottflutningur á sprengdu grjóti 4.900 m3
- Þökulögn 1.900 m2
- Ræsi yfirborðsvatns 34 m
- Ljósastólpar 31 stk
- Rafstrengir 1.100 m
Útboðsgögn verða eingönguaðgengileg á útboðsvef Reykjavíkurborgar á vefslóðinni: http://utbod.reykjavik.is– frá kl. 15:30, 17. mars 2025. Smellið á íslenska fánann til að fá útboðsvefinn upp á íslensku. Nýskráning fyrirtækja hefst með því að smella á „Nýskráning“.
Vakin er athygli á að senda verður fyrirspurnir í gegnum útboðsvef Reykjavíkurborgar. Fyrirspurnum sem berast með öðrum hætti verður ekki svarað.
Tilboðum skal skila með rafrænum hætti á framangreindan útboðsvef Reykjavíkurborgar eigi síðar en: Kl. 10:00 þann 7. apríl 2025.