Home Fréttir Í fréttum 01.04.2025 Yfir­lagn­ir á Norður­svæði 2025, klæð­ing

01.04.2025 Yfir­lagn­ir á Norður­svæði 2025, klæð­ing

18
0
Mynd: Vegagerðin

Vegagerðin býður hér með út yfirlagnir með klæðingu á vegum á Norðursvæði  árið 2025. Verkefnið felst í að leggja einfalt lag af klæðingu með þjálbiki yfir eldra slitlag.

Helstu magntölur eru:
• Klæðing, útlögn með þjálbiki
500.000 m2
• Klæðing, kíling, útlögn
61.000 m2
• Klæðing, flutningur steinefnis
172.000 m3 * km
• Klæðing, flutningur bindi- og viðloðunarefnis
47.000 m3 * km
• Formerkingar, línur
72.000 m

Verki skal að fullu lokið 15. ágúst 2025.

Útboðsgögn eru aðgengileg og verða afhent í rafræna útboðskerfinu  TendSign  frá og með mánudeginum 17.  mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 1 apríl 2025.

Ekki verður haldinn sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda og verðtilboð.