Skipulagsstofnun leggst gegn leyfi fyrir efnistöku í sjó úti fyrir Landeyja- og Eyjafjallasandi.
Heidelberg Materials, hugðist taka allt að 2 millj. m3 á ári í 30 ár af 100km2 hafsvæði. Engin fordæmi eru fyrir viðlíka efnistöku í sjó hér við land. Skipulagsstofnun telur mikla óvissu um umhverfisáhrifin.
Þyngst vegi áhrifin á lífríki sjávar en efnistökusvæðið sé á mikilvægu hrygningar- og uppeldissvæði margra fiskistofna og að óvissan snúi að mjög mikilvægum þjóðhagslegum hagsmunum.
Mölunarverksmiðja sem átti að reisa í Þorlákshöfn átti að vinna efnið en henni var hafnað í íbúakosningu. Heidelberg hefur nú kynnt málið í Norðurþingi.
Heimild: Ruv.is