Home Á döfinni Fyrirhugaðar opnanir útboða 25.03.2025 Örlygs­hafnar­vegur (612) Hvalsker – Sauð­lauks­dalur og Hvallátrar

25.03.2025 Örlygs­hafnar­vegur (612) Hvalsker – Sauð­lauks­dalur og Hvallátrar

61
0

Vegagerðin býður hér með út nýbyggingu og endurbætur á tveimur hlutum Örlygshafnarvegar (612). Annars vegar er um að ræða endurbætur á hluta Örlygshafnarvegar (612-03/04) um Hvallátra. Lengd útboðskafla er um 1,9 km veghluti.

Verkið felst í nýbyggingu vegarins, lagfæringu hans og frágangi með bundnu slitslagi með áherslu á að auka umferðaröryggi.

Hins vegar er um að ræða endurbætur á hluta Örlygshafnarvegar (612) Hvalsker – Sauðlauksdalur. Lengd útboðskafla er um 4,0 km. Verkið felst í endurnýjun vegarins, lagfæringu hans og frágangi með bundnu slitlagi.

 

Magntölur fyrir verkefnið Hvalsker – Sauðlauksdalur eru eftirfarandi:
Bergskeringar í vegsvæði
9.000 m3
Fyllingar
16.500 m3
Fláafleygar
10.000m3
Röralögn
318 m
Styrktarlag
10.850 m3
Burðarlag
4.640 m3
Klæðing
26.280 m2
Frágangur fláa
46.000 m2
Magntölur fyrir verkefnið Hvallátra eru eftirfarandi:
Bergskeringar í vegsvæði
22.000 m3
Fyllingar
22.000 m3
Fláafleygar
6.760 m3
Röralögn
100 m
Styrktarlag
5.120 m3
Burðarlag
2.260 m3
Klæðing
12.700 m2
Frágangur fláa
15.000 m2

Verkinu skal að fullu lokið eigi síðar en 10. ágúst 2026.

Útboðsgögn eru aðgengileg í rafræna útboðskerfinu TendSign frá og með mánudeginum 10. mars 2025 og skal tilboðum skilað rafrænt í því útboðskerfi fyrir kl. 14:00 þriðjudaginn 25. mars 2025.

Ekki verður haldin sérstakur opnunarfundur en eftir lok tilboðsfrests verður bjóðendum tilkynnt um nöfn bjóðenda í útboðinu og heildartilboðsupphæð